Ingvar á íslandi
Sjálfshjálp er góð
25.10.2007 23:40:23 / ingsi

Já bara af hverju??????

>Allaf svoldið gaman að velta fyrir sér:

>Af hverju ætli maður þurfi alltaf að gá hvort veggur sé nýmálaður, þegar maður sér viðvörun um það? >

>Skyldi "franskur koss" bara kallast "koss" í Frakklandi?>

>Hver ætli hafi verið sá fyrsti sem horfði á kú og sagði: "Ég held ég >kreisti þetta dinglumdangl neðan á henni og drekki það sem út kemur"?>

>Af hverju límist ekki límtúpan saman?>

>Af hverju sér maður aldrei fyrirsögnina: "Skyggn manneskja vinnur í lottó"?>

>Af hverju er orðið "skammstöfun" svona langt orð? > >Af hverju er hnefaleikahringurinn ferhyrndur?>

>Af hverju er appelsínusafi framleiddur úr gerviefnum og uppþvottalögur >búinn til úr ekta sítrónum?>

>Af hverju er það kallað "rush-hour" einmitt þegar umferðin gengur sem >hægast? >

>Af hverju er orðið orðabók í orðabókum? >

>Af hverju er ekki til kattamatur með músabragði? >

>Af hverju eru flugvélar ekki framleiddar úr sama efni og "svarti kassinn" >sem er óbrjótandi og erfitt að eyðileggja? >

>Af hverju eru allar brauðristar með stillingu sem brenna brauðsneiðar í >kolamola sem enginn vill borða?>

>Ef maður á jarðarskika, á maður hana þá alveg niður að kjarna Jarðarinnar?>

>Af hverju geta konur ekki sett á sig maskara án þess að hafa opinn munninn?>

>Af hverju klæjar mann alltaf í nefið þegar maður er búinn að óhreinka >hendurnar?>

>Af hverju er mínútan miklu lengur að líða fyrir utan klósetthurðina en >innan?>

>Ef ástin er blind, af hverju eru sexý undirföt þá svona vinsæl? >

>Hvers vegna vantar okkur alltaf eitthvað af draslinu sem við geymdum >uppi á lofti í 3 ár, 3 dögum eftir að við hentum því loksins? >

>Ef það er satt að við séum hér til að hjálpa öðrum, hvað eru þá hinir >að gera hér? >

>Ef ólívuolía er búin til úr ólívum, hvaðan kemur þá barnaolían ?>

 

Og mamma til hamingju með fimmtíu ára afmælið:D


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 00:03:29 / ingsi

Gítar nám

Ég fékk átta gítartíma í afmælisgjöf frá félugunum og firsti tíminn er á næsta mánudag. Ég hlakka allveg svakalega mikið til.Ég ætlaði einmitt að stefna á gítarnám eftir áramót ;)

...........................Allavega góða vinnuviku og allir að kvitta :haha: 


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 12:57:19 / ingsi

Hann á afmæli í dag!!!!!

Ég er þrítugur í dag :haha:  og í tilefni þess var haldin svakaveisla í gær. Sem heppnaðist svakalega vel og komu allveg svakalega margir :haha: 

Bara TAKK TAKK TAKK allir sem komu þetta var æðislegt

Ég er allveg á skýunum:haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha: 


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 00:06:08 / ingsi

ingvar með gesti

Þetta eru Mikkel og Allan dönsku vinir mínir. Þeir eru í hljómsveitini hanns Jónasar og er að fara að spila á Airwaves.

Ég er að spá í að fara með þá einhvern rúnt kannski í bláa lónið og eitthvað. Það er allger snilld að hafa þá í heimsókn ótrúlega fínir gæjar:D

Ég tók þessa myd fyrir utan brennsluna á Borgafyrði eystri í sumar. Óli Palli (popp/rokklandskóngur) Og Jónas


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 00:19:06 / ingsi

Við erum búnir að eiga þessa................

..........frábæru helgi saman ég og minn elskulegi sonur, hann Pétur Orri. Ýmislegt búið að bralla t.d. hjálpa Hilmari bróðir og Guðrúnu að flytja. Það gengur vel hjá þeim Þau eru að byggja og eru búin að selja ofan af sér og voru að flytja í leigu íbúð.

Svo löbbuðum við feðgar niður laugaveginn og keyptum okkur boli í osoma og stoppuðum í skífunni og keyptum tvo diska, nýju diskana með Sprengjuhöllinni og James Blunt. snilldardiskar.Ég er svo ruglaður þegar ég fer í plötubúðir ég er er allveg úti að skíta:S ég fór um daginn í skífuna og ætlaði að kaupa disk með Bítlunum en kom út með safndisk með Elvis Presley??? Hum???? Ég veit ekki allveg hvað gerðist ........??? 8| en eitthvað sló samaní toppstykkinu;)

Við stoppuðum í Sandholtsbakaríi á bakaleiðinni og fengum okkur rúnstikki ég mæli með því bakaríi (þangað til maður á að borga) þvílíkt gott og kósí bakarí.

Hulda og Ray buðu okkur svo í mat um kvöldið það var allgert æði nepalskur kjúklingaréttur snilldin ein:D Það er ótrúlega gaman að fara svona í matarboð, hitta vini og spjalla saman, ég ætla að fara að gefa mér meiri tíma í að bjóða fólki í mat allger snilld, og takk fyrir mig :D

Á sunnudaginn þá vöknuðum við snemma (hehe kl tíu) og fórum í bakaríið í morgunverð og beint í sund. Þaðan í afmæli hjá honum Davíð. Um kvöldið bauð mamma okkur í hrygg og ekki af verri endanum með mömmubragði og allt:haha:

Við feðgar erum ekki búnir að vera sáttir með að hittast svona lítið þannig að við erum að prófa það að hann sofi hjá mér á sunnudagskvöldum og vöknum kl630 og ég skuttli honum fyrir skóla. Það munar svoldið um tímann finnst mér...........

Bjössi í mínus gaf mér smáskífu með Motion Boys.........eitthvað hliðar verkefni hjá honum geðveik grúbba þið ættuð að leggja þetta nafn á minnið:$

Og eitt skrítið ég dreymdi fyrrverandi kærustuna mína enn og aftur, hvað er það??? ég er búinn að sjá hana einusinni á einu ári og tala við hana þrisvar en ég er alltaf að dreyma hana??? skrítið............ jæja hættum þessu bulli:haha:

Góða vinnuviku elskurnar mínar

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 10:56:10 / ingsi

Ég bara verð að sýna ykkur þessa

Strákurinn flottur :haha:

MT8V2378

En samt skrítið mér fannst eins og hann hafi aðeins lift vinstra frammhjólinu;)

..............???


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 00:07:46 / ingsi

Strákurinn er að verða þrítugur!!!!

Já ég er loksins að verða þrítugur og það verður þann 21okt. en ég ætla að halda upp á það 20okt. Sko ég er búinn að ákveða að hafa svaka partý og ég ætla að halda það í sal, en ég veit ekki allveg hvaða sal???  Ég verð að leggja hausinn í bleiti. Ætti ég að hafa hann í hafn. eða rvk? ....humm veit ekki.........? einhverjar hugmyndir???


» 2 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagsetning
19. mars 2010